Stubbur - Algengar spurningar
Við svörum öllum fyrirspurnum en ef svar hefur ekki borist fyrir viðburð er auðveldast að ganga frá kaupum aftur og við leysum svo vandamál eftir það.
Það eru engir miðar í sölu á viðburð?
Söluaðilar stjórna framboði af miðum í sölu og getur því átt eftir að bæta við miðum sem fara í sölu eða það er uppselt.
Ég keypti miða og þarf að fá endurgreitt.
Miðar eru ekki endurgreiddir nema að viðburður felli niður eða að villa hafi komið upp vegna tæknilegra vandamála.
Viðburður féll niður
Sendu okkur upplýsingar sem eru hér neðst á síðunni
Það kom upp tæknilegt vandamál
Sendu okkur upplýsingar sem eru hér neðst á síðunni
Ég er með árskort, hvernig fæ ég miða?
Árskortin virka sem greiðsluleið, nánar má lesa um árskort hér
hér
Ég er með árskort en það virkar ekki að sækja miða með því
Þá ertu með eldri útgáfu af appinu og því nauðsynlegt að uppfæra Stubb með því að smella
hér
Ég er með skírteini frá HSÍ, KKÍ eða KSÍ, hvernig fæ ég miða?
Skírteinin virka sem greiðsluleið, nánar má lesa um virkni skírteina
hér
Ég er með skírteini en það virkar ekki að sækja miða með því
Byrjaðu á að ganga úr skugga um að vera með nýjustu útgáfu af Stubbs appinu
hér.
Sjáðu til þess að símanúmer sé tengt með því að velja valmynd efst hægra megin á forsíðu.
Ef þú ert með skírteini þá þarf að passa að einungis er hægt að sækja skírteinismiða sér. Þeir kosta alltaf 0 kr. og eru yfirleitt neðst í listanum.
Það virkar ekki að kaupa
Langalgengasta lausnin er að endurtengja símanúmer og/eða fjarlægja appið, sækja það aftur, tengja símanúmer og prófa aftur.
Ég þarf að senda miða
Hægt er að senda miða í gegnum appið á símanúmer. Sá aðili sem fær miða senda til sín þarf að sækja Stubbs appið og tengja símanúmerið sitt. Þá birtast miðarnir í miðjuflipa hjá viðkomandi.
Það stendur 0 kr. þegar ég ætla að greiða
Prófaðu að velja viðburðinn af forsíðu í appinu en ekki í gegnum Mitt Lið
Mér sýnist ég hafa fengið tvírukkun
Sendu okkur upplýsingar að neðan og við leysum málið
Virka erlend símanúmer?
Erlend símanúmer virka í Stubb
Ef upp koma vandamál sem eru ekki hér fyrir ofan þarf að senda okkur tölvupóst með eftirfarandi upplýsingum
Nafn á viðburð
Vandamál
Símanúmer
á netfangið stubbur@stubbur.app